Skilmálar — 52 hlutir
52 hlutir 52 hlutir Persónuvernd

Skilmálar 52 hluta

Síðast uppfært: 18. ágúst 2026

1. Um 52 hluti

52 hlutir, 52hlutir.is, er samfélagsvettvangur rekinn af Af öllu hjarta ehf., kt. 510221-1090, Lindargata 27.

Á 52 hlutum geta notendur meðal annars búið til lista yfir markmið, skráð framvindu, skrifað sögur og færslur, birt myndir, átt samskipti við aðra notendur og nýtt aðra virkni sem boðið er upp á hverju sinni.

Með því að stofna aðgang og samþykkja skilmálana samþykkir þú þessa skilmála og staðfestir að þú hafir kynnt þér persónuverndarstefnu 52 hluta.

2. Aðgangur og aldur

Þú þarft að hafa náð 14 ára aldri til að stofna aðgang.

Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú veitir séu réttar og að gæta aðgangsupplýsinga þinna. Ekki má deila aðgangi með öðrum eða leyfa öðrum að nota hann í þínu nafni.

Láttu okkur vita eins fljótt og auðið er ef þú telur að óviðkomandi hafi komist inn á aðganginn þinn.

Við áskiljum okkur rétt til að óska eftir staðfestingu á upplýsingum eða aldri ef tilefni er til.

3. Efnið þitt

Þú átt áfram efnið sem þú setur inn á 52 hluti, svo sem texta, lista, markmið, sögur, athugasemdir og myndir.

Með því að setja efni inn veitir þú Af öllu hjarta ehf. leyfi, að því marki sem nauðsynlegt er til að reka þjónustuna, til að geyma, afrita, vinna tæknilega með og birta efnið samkvæmt sýnileikastillingum þínum. Tæknileg vinnsla getur meðal annars falist í breytingu á stærð eða þjöppun mynda.

Þú berð ábyrgð á því efni sem þú setur inn og að þú hafir heimild til að birta það. Þú mátt meðal annars ekki birta myndir, texta eða aðrar upplýsingar sem brjóta gegn höfundarrétti, friðhelgi einkalífs eða öðrum réttindum þriðja aðila.

Leyfi okkar til að nota efnið lýkur almennt þegar því er eytt úr þjónustunni, að teknu tilliti til tímabundinna öryggisafrita og annarrar varðveislu sem kann að vera nauðsynleg eða lögbundin.

4. Opinbert og lokað efni

Þú stjórnar hver sér efnið þitt með sýnileikastillingum þjónustunnar.

Ef þú velur að birta efni opinberlega getur það orðið aðgengilegt fólki utan 52 hluta, birst í leitarvélum eða verið afritað eða deilt af öðrum. Við getum ekki ábyrgst að hægt verði að fjarlægja öll afrit sem aðrir hafa gert eftir að efni hefur verið birt opinberlega.

Efni sem þú sendir öðrum notendum getur sömuleiðis verið vistað, afritað eða miðlað áfram af viðtakanda. Af öllu hjarta ehf. ber ekki ábyrgð á því hvernig aðrir notendur fara með efni sem þú velur að deila með þeim.

5. Óheimilt efni og hegðun

Óheimilt er að nota 52 hluti til að birta, senda eða dreifa efni sem brýtur gegn lögum eða réttindum annarra.

Þar undir fellur meðal annars efni sem felur í sér hótanir, alvarlega áreitni, einelti, hatursorðræðu, kynferðislegt eða klámfengið efni, svik, auðkennisþjófnað, óheimila birtingu persónuupplýsinga, brot á hugverkaréttindum eða annað ólöglegt efni.

Einnig er óheimilt að nota þjónustuna til að senda ruslpóst, villa á sér heimildir, safna upplýsingum um aðra notendur með óheimilum hætti, dreifa spilliforritum, misnota virkni þjónustunnar, trufla rekstur hennar eða reyna að komast fram hjá öryggisráðstöfunum hennar.

6. Markmið, hugmyndir og athafnir notenda

52 hlutir hjálpa notendum að setja sér og skrá markmið. Af öllu hjarta ehf. ber ekki ábyrgð á því hvort tiltekið markmið, hugmynd eða athöfn sé örugg, skynsamleg eða viðeigandi fyrir viðkomandi notanda.

Efni á 52 hlutum telst ekki læknisfræðileg, fjárhagsleg, lögfræðileg eða önnur sérfræðiráðgjöf.

Þú berð ábyrgð á þeim ákvörðunum sem þú tekur og athöfnum sem þú framkvæmir í tengslum við markmið, hugmyndir eða efni sem þú finnur á 52 hlutum. Það á meðal annars við um ferðalög, íþróttir, heilsutengd markmið, áskoranir og aðrar athafnir sem geta haft kostnað eða áhættu í för með sér.

7. Samskipti og aðrir notendur

Af öllu hjarta ehf. ber ekki ábyrgð á upplýsingum sem aðrir notendur veita um sjálfa sig, hegðun þeirra eða samskiptum milli notenda.

Ef notendur ákveða að hittast, framkvæma markmið saman eða taka þátt í sameiginlegri starfsemi gera þeir það á eigin ábyrgð.

8. Umsjón, tilkynningar og lokun aðgangs

Notendur geta tilkynnt efni eða hegðun sem þeir telja brjóta gegn þessum skilmálum.

Af öllu hjarta ehf. áskilur sér rétt til að fela, takmarka eða fjarlægja efni og takmarka, stöðva eða loka aðgangi notanda ef við teljum tilefni til.

Það getur meðal annars átt við ef skilmálar eru brotnir, grunur er um misnotkun eða svik, öryggi þjónustunnar er ógnað eða aðgerð er talin nauðsynleg til að vernda aðra notendur, þjónustuna eða Af öllu hjarta ehf.

Við áskiljum okkur rétt til að bregðast strax við og án fyrirvara þegar aðstæður kalla á það.

Við erum ekki skuldbundin til að fylgjast fyrirfram með öllu efni sem notendur setja inn og getum ekki ábyrgst að efni sem brýtur gegn skilmálunum finnist eða verði fjarlægt samstundis.

9. Kaup og pantanir

Á 52 hlutum kann að vera boðið upp á kaup á áskrift, aukinni virkni, stafrænum verðlaunum eða annarri stafrænni þjónustu.

Verð og það sem innifalið er í kaupum kemur fram í kaupferlinu áður en kaup eru staðfest. Verð til neytenda inniheldur lögbundin opinber gjöld eftir því sem við á.

Kaup verða bindandi þegar kaupandi hefur staðfest kaup með aðgerð sem skýrt gefur til kynna greiðsluskyldu, greiðsla hefur verið samþykkt og pöntun staðfest.

Með staðfestingu kaupa samþykkir kaupandi þá skilmála sem gilda um viðskiptin og staðfestir að hafa kynnt sér persónuverndarstefnu Af öllu hjarta ehf.

Af öllu hjarta ehf. áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla kaup, að hluta eða í heild, meðal annars vegna:

  • gruns um svik eða misnotkun,
  • brota á skilmálum 52 hluta,
  • rangrar eða óheimillar notkunar greiðslumiðils,
  • augljósrar villu í verði eða kaupferli,
  • tæknilegra mistaka,
  • öryggissjónarmiða,
  • lagaskyldu eða fyrirmæla stjórnvalda,
  • annarra málefnalegra ástæðna sem gera eðlilega framkvæmd kaupanna ómögulega eða óhæfilega.

Ef Af öllu hjarta ehf. afturkallar greidd kaup án þess að ástæða þess verði rakin til brots eða misnotkunar kaupanda verður kaupverð endurgreitt að því marki sem hin keypta þjónusta hefur ekki þegar verið veitt.

Ef aðgangi er lokað vegna brota notanda á þessum skilmálum áskilur Af öllu hjarta ehf. sér rétt til að synja endurgreiðslu að því marki sem lög heimila.

10. Greiðslur

Hægt er að greiða fyrir þjónustu á 52hlutir.is með kredit- eða debetkorti.

Af öllu hjarta ehf. er seljandi þjónustunnar og viðtakandi greiðslunnar. Straumur greiðslumiðlun hf. sér um vinnslu kortagreiðslna sem fara fram í gegnum greiðslulausn 52 hluta.

Kortaupplýsingar eru meðhöndlaðar í greiðslukerfi Straums samkvæmt þeim öryggisráðstöfunum og skilmálum sem gilda um greiðsluþjónustu þess.

Ef greiðsla tekst ekki áskilur Af öllu hjarta ehf. sér rétt til að reyna innheimtu aftur þar sem um áskrift er að ræða og/eða takmarka aðgang að greiddri þjónustu þar til greiðsla hefur farið fram.

Við berum ekki ábyrgð á truflunum eða bilunum í greiðsluþjónustu þriðja aðila sem eru utan eðlilegrar stjórnunar okkar.

11. Áskriftir

52 hlutir geta boðið greidda áskrift þar sem kaupandi velur meðal annars á milli mánaðarlegrar og árlegrar greiðslu.

Mánaðarleg áskrift er innheimt mánaðarlega og árleg áskrift fyrir eitt ár í senn.

Nema annað sé sérstaklega tekið fram í kaupferlinu endurnýjast áskrift sjálfkrafa við lok hvers greiðslutímabils og gjaldfærist þá fyrir næsta tímabil með þeim greiðslumáta sem skráður er.

Kaupandi getur sagt áskrift upp hvenær sem er. Uppsögn tekur að jafnaði gildi við lok þess tímabils sem þegar hefur verið greitt fyrir og heldur kaupandi aðgangi að greiddri þjónustu fram að þeim tíma.

Uppsögn stöðvar framtíðargreiðslur en felur ekki sjálfkrafa í sér endurgreiðslu á því tímabili sem þegar hefur verið greitt fyrir, nema lög eða þessir skilmálar kveði á um annað.

Af öllu hjarta ehf. getur breytt verði áskriftar. Verðbreyting hefur ekki afturvirk áhrif á tímabil sem þegar hefur verið greitt fyrir og tekur gagnvart virkum áskrifanda fyrst gildi við síðari endurnýjun eftir að honum hefur verið tilkynnt um breytinguna með hæfilegum fyrirvara.

Kaupandi ber ábyrgð á að greiðsluupplýsingar séu gildar. Ef endurnýjunargreiðsla tekst ekki getur aðgangur að greiddri virkni verið takmarkaður eða stöðvaður þar til greiðsla tekst.

12. Réttur til að falla frá kaupum

Um rétt neytenda til að falla frá kaupum gilda lög um neytendasamninga og önnur ófrávíkjanleg ákvæði íslenskra laga.

Þegar neytandi á lögbundinn rétt til að falla frá fjarsölusamningi er fresturinn almennt 14 dagar frá samningsgerð þegar um þjónustu er að ræða.

Óski kaupandi eftir því að greidd þjónusta hefjist strax kann Af öllu hjarta ehf., þegar lög heimila, að eiga rétt á greiðslu fyrir þann hluta þjónustunnar sem þegar hefur verið veitt áður en tilkynning um að fallið sé frá samningi berst.

Þegar um stafrænt efni er að ræða sem afhent er tafarlaust getur réttur til að falla frá kaupum fallið niður þegar afhending hefst, enda hafi kaupandi fyrir fram samþykkt að afhending hefjist og viðurkennt að hann missi þar með rétt sinn til að falla frá kaupunum, eftir því sem lög gera kröfu um.

Ekkert í þessum skilmálum takmarkar lögbundinn rétt neytanda.

13. Stafræn verðlaun og gjafir

Á 52 hlutum kann að vera hægt að kaupa stafræn verðlaun eða sambærilega stafræna hluti og gefa öðrum notendum.

Stafræn verðlaun hafa ekki peningalegt verðgildi utan þjónustunnar og ekki er hægt að innleysa þau fyrir reiðufé.

Þegar verðlaun hafa verið keypt og afhent þeim notanda sem kaupandi valdi teljast þau afhent.

Vegna eðlis stafrænnar afhendingar er ekki hægt að afturkalla gjöf eða skila verðlaunum eftir að þau hafa verið afhent viðtakanda, að því marki sem kaupandi hefur með lögmætum hætti samþykkt tafarlausa afhendingu og fall frá rétti til að falla frá kaupum.

Mistök kaupanda við val á viðtakanda veita ekki sjálfkrafa rétt til endurgreiðslu eftir að verðlaunin hafa verið afhent.

Lögbundinn réttur neytanda helst þó óskertur þar sem honum verður ekki vikið til hliðar með samningi.

14. Afhending stafrænnar þjónustu

Greiddur aðgangur og annað stafrænt efni er að jafnaði virkjað sjálfkrafa eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

Tafir geta þó orðið vegna tæknilegra vandamála, viðhalds, bilana hjá þjónustuaðilum eða annarra atvika.

Tímabundnar truflanir á þjónustu veita ekki sjálfkrafa rétt til endurgreiðslu.

Ef greidd þjónusta er óaðgengileg um verulegan samfelldan tíma vegna atvika sem eru á ábyrgð Af öllu hjarta ehf. mun félagið eftir atvikum leitast við að bæta úr vandanum, framlengja aðgang, veita hlutfallslega endurgreiðslu eða endurgreiða ónýtt tímabil, eftir eðli og umfangi truflunarinnar og eftir því sem lög krefjast.

Notandi skal tilkynna okkur um vandamál svo fljótt sem unnt er svo hægt sé að kanna og leiðrétta þau.

15. Rekstur þjónustunnar og gögn

Við reynum að halda 52 hlutum aðgengilegum og öruggum en getum ekki ábyrgst að þjónustan verði alltaf aðgengileg, villulaus eða laus við bilanir.

Við getum breytt, bætt við, takmarkað eða hætt einstökum eiginleikum þjónustunnar.

Við ábyrgjumst ekki að efni eða gögn glatist aldrei. Notendum er því ráðlagt að varðveita eigið afrit af efni sem skiptir þá sérstaklega miklu máli.

Við berum ekki ábyrgð á tímabundnu þjónusturofi, gagnatapi eða öðrum vandamálum sem rekja má til bilana, netárása, þjónustuaðila, fjarskipta, óviðráðanlegra atvika eða annarra aðstæðna sem við höfum ekki sanngjarna stjórn á, að því marki sem lög heimila.

16. Þjónusta þriðja aðila

52 hlutir nota þjónustu annarra fyrirtækja meðal annars vegna greiðslumiðlunar, innskráningar, tölvupósts, gagnageymslu og hýsingar.

Slík þjónusta getur lotið eigin skilmálum og persónuverndarreglum viðkomandi fyrirtækja.

Af öllu hjarta ehf. ber ekki ábyrgð á sjálfstæðri þjónustu, rekstri eða bilunum þriðja aðila að því marki sem lög heimila.

17. Hugverkaréttindi 52 hluta

Vörumerki, hönnun, hugbúnaður, gagnagrunnar, textar og annað efni sem tilheyrir 52 hlutum eða Af öllu hjarta ehf. er verndað samkvæmt viðeigandi hugverkarétti.

Þessir skilmálar veita notendum ekki eignarrétt eða önnur réttindi yfir slíku efni umfram þann rétt sem nauðsynlegur er til eðlilegrar notkunar þjónustunnar.

18. Takmörkun ábyrgðar

52 hlutir eru veittir eins og þeir eru og samkvæmt því framboði sem er hverju sinni.

Að því marki sem lög heimila ábyrgist Af öllu hjarta ehf. ekki að þjónustan uppfylli sérstakar væntingar eða þarfir notanda eða að upplýsingar sem notendur birta séu réttar, fullnægjandi eða áreiðanlegar.

Af öllu hjarta ehf. ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til ákvarðana eða athafna notenda, samskipta þeirra við aðra notendur, efnis sem notendur birta, þjónustu þriðja aðila eða þess að notandi treystir á upplýsingar sem birtast á vettvangnum.

Að því marki sem lög heimila ber Af öllu hjarta ehf. ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, glötuðum gögnum, glötuðum tækifærum, tekjumissi eða öðru afleiddu tjóni vegna notkunar eða ómöguleika á notkun þjónustunnar.

Ekkert í þessum skilmálum útilokar eða takmarkar ábyrgð sem samkvæmt lögum er óheimilt að útiloka eða takmarka.

19. Eyðing og lokun aðgangs

Þú getur óskað eftir eða framkvæmt eyðingu aðgangs samkvæmt þeim leiðum sem boðið er upp á á vefnum.

Við getum lokað aðgangi eða þjónustunni í heild ef rekstri hennar er hætt.

Við lokun eða eyðingu aðgangs getur aðgangur að efni glatast. Einstök gögn kunna þó að vera varðveitt tímabundið í öryggisafritum eða lengur þegar varðveisla er nauðsynleg samkvæmt lögum, vegna öryggis eða til að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.

20. Breytingar á skilmálum og þjónustu

Af öllu hjarta ehf. áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum og persónuverndarstefnu félagsins þegar þjónustan, rekstur hennar, verðlagning, lög eða aðrar aðstæður gefa tilefni til.

Nýjasta útgáfa skilmálanna er á hverjum tíma birt á 52hlutir.is.

Verulegar breytingar sem hafa áhrif á réttindi eða skyldur notenda eða virka greidda áskrift verða kynntar með hæfilegum fyrirvara, til dæmis á vefnum eða með tölvupósti.

Breytingar hafa ekki afturvirk áhrif á þegar staðfest kaup nema lög heimili það eða notandi samþykki breytinguna.

Áframhaldandi notkun þjónustunnar eftir gildistöku nýrra skilmála telst samþykki þeirra að því marki sem lög heimila. Ef sérstaks samþykkis er krafist verður óskað eftir því sérstaklega.

21. Úrlausn ágreinings

Leitast skal við að leysa ágreining vegna þjónustu 52 hluta með einföldum og sanngjörnum hætti milli aðila.

Náist ekki samkomulag getur neytandi eftir því sem við á leitað til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Um skilmálana og viðskipti við Af öllu hjarta ehf. gilda íslensk lög.

Ágreining sem ekki tekst að leysa með öðrum hætti má bera undir íslenska dómstóla. Að því marki sem heimilt er samkvæmt lögum skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ákvæði þessa kafla takmarka ekki þann rétt sem neytandi kann að eiga samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum um lögsögu eða úrlausn ágreinings.

22. Samband

Spurningar um þjónustu, kaup eða þessa skilmála má senda á:

Af öllu hjarta ehf.
Lindargata 27
hallo@afolluhjarta.is