Persónuverndarstefna — 52 hlutir
52 hlutir 52 hlutir Skilmálar

Persónuverndarstefna 52 hluta

Síðast uppfært: 18. ágúst 2026

Þessi stefna lýsir því hvernig Af öllu hjarta ehf. safnar, notar og verndar persónuupplýsingar þegar þú notar 52 hluti (52hlutir.is). Við leggjum áherslu á að vinna aðeins þær upplýsingar sem raunverulega þarf til að reka þjónustuna, og að vera opin um hvernig það er gert.

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er:

Af öllu hjarta ehf.
Kt. 510221-1090
Lindargata 27
hallo@afolluhjarta.is

Þessi persónuverndarstefna er í samræmi við skilmála 52 hluta.

2. Hvaða upplýsingum við söfnum

Upplýsingar sem þú gefur okkur

Aðgangur: Þegar þú stofnar aðgang vinnum við netfang þitt og lykilorð. Lykilorð eru aldrei geymd í læsilegum texta heldur aðeins sem varið (hashað) gildi. Ef þú skráir þig inn með Google fáum við nafn, netfang og prófílmynd frá Google (sjá lið 8).

Prófíll: Þú getur bætt við nafni, birtingarnafni, prófílmynd, forsíðumynd, stuttri lýsingu, staðsetningu sem frjálsum texta, aldri, fæðingardegi og stillingum um tungumál, þema og sýnileika. Þú ræður sjálf(ur) hvaða af þessum upplýsingum þú skráir.

Efni þitt: Listar, markmið, sögur, færslur, athugasemdir, myndir, viðburðir, félagaleit og annað efni sem þú býrð til. Stór hluti þessa er frjáls texti — sjá lið 4 um viðkvæmar upplýsingar.

Einkaskilaboð: Skilaboð og myndir sem þú sendir öðrum notendum í einkaspjalli. Textaskilaboð eru geymd sem texti og myndir í spjalli eru geymdar á lokuðu geymslusvæði sem aðeins þátttakendur samtalsins hafa aðgang að.

Samskipti við okkur: Ef þú sendir okkur ábendingu, fyrirspurn eða tilkynningu vinnum við þær upplýsingar sem þú lætur í té, ásamt netfangi.

Upplýsingar sem verða til við notkun

Félagsleg tengsl: Hverjum þú fylgir, hverjir fylgja þér, hverja þú hefur lokað á (blokkað) og tilkynningar sem myndast við samskipti. Þú sérð eigin tengingar og lokanir; þú sérð ekki hverjir hafa lokað á þig.

Kaup: Ef þú kaupir þjónustu eða stafræn verðlaun vinnum við kaupsögu (hvað var keypt, upphæð, staða) — sjá lið 7.

Notkunartölfræði: Við söfnum einfaldri, fyrsta-aðila tölfræði um heimsóknir (t.d. hvaða síður eru skoðaðar). Í þessari tölfræði er notað slembikennimark sem geymt er í vafra þínum — ekki er safnað IP-tölu, vafraauðkenni (user-agent) né vafrakökum í þessum tilgangi.

Tæknilegar upplýsingar á vettvangsstigi: Þjónustuaðilar sem hýsa og verja vefinn (sjá lið 10) vinna óhjákvæmilega tæknilegar upplýsingar á borð við IP-tölu í eigin aðgangsskrám (server logs) og til að verjast misnotkun. Slíkar upplýsingar eru ekki geymdar í okkar eigin gagnagrunni.

3. Samþykki við stofnun aðgangs

Við stofnun aðgangs þarft þú að haka sérstaklega við óforhakaðan reit þar sem þú samþykkir skilmála 52 hluta og þessa persónuverndarstefnu. Ekki er hægt að ljúka skráningu án þess.

Þegar samþykki er veitt skráum við hvenær það var gert og hvaða útgáfa skilmála og persónuverndarstefnu var í gildi, svo hægt sé síðar að sjá hverju þú samþykktir og hvenær.

4. Sýnileiki efnis og viðkvæmar upplýsingar

Þú stjórnar sjálf(ur) sýnileika efnis þíns með þeim stillingum sem þjónustan býður upp á. Efni getur verið:

  • Opinbert — sýnilegt öllum, líka fólki utan 52 hluta, og getur birst í leitarvélum eða verið afritað af öðrum.
  • Aðgengilegt ákveðnum notendum — t.d. aðeins innskráðum notendum eða þeim sem þú hefur samþykkt sem tengsl/vini.
  • Lokað (einkaefni) — aðeins sýnilegt þér.
  • Einkaskilaboð — aðeins sýnileg þátttakendum samtalsins.

Lokað efni og einkaskilaboð eru ekki birt opinberlega af 52 hlutum. Aðgangsstýring er útfærð í kerfinu þannig að efni sem er ekki opinbert kemur ekki fram í opinberum svörum, leitarvélakynningum eða straumum annarra notenda.

Þar sem stór hluti efnis er frjáls texti geta notendur sjálfir sett inn mjög persónulegar upplýsingar, eða upplýsingar sem kunna að teljast viðkvæmar. Við biðjum ekki um slíkar upplýsingar og ráðleggjum þér að setja ekki inn viðkvæmar persónuupplýsingar í opinbert efni. Efni sem þú skráir er unnið samkvæmt þeim sýnileika sem þú velur.

5. Á hvaða lagagrundvelli við vinnum upplýsingar

Vinnsla persónuupplýsinga byggist eftir atvikum á eftirfarandi:

  • Framkvæmd samnings — til að stofna og reka aðganginn þinn, birta efni samkvæmt stillingum þínum, gera samskipti möguleg og afgreiða kaup.
  • Lögmætir hagsmunir — til að halda þjónustunni öruggri, koma í veg fyrir misnotkun og svik, bæta þjónustuna og halda einfalda notkunartölfræði.
  • Samþykki — þar sem það á sérstaklega við, t.d. samþykki við skilmála og persónuverndarstefnu við skráningu. Þú getur afturkallað samþykki sem vinnsla byggist á.
  • Lagaskylda — t.d. varðveisla bókhaldsgagna vegna kaupa.

6. Vafrakökur og sambærileg tækni

Við notum vafrakökur og sambærilega tækni — meðal annars staðbundna geymslu í vafra þínum (localStorage og sessionStorage) — sem nauðsynleg er til að þjónustan virki, meðal annars til að:

  • halda þér innskráðum,
  • muna stillingar á borð við tungumál og þema,
  • geyma slembikennimark fyrir einfalda notkunartölfræði,
  • vista drög og tímabundnar stillingar meðan þú vinnur.

Þessi tækni er notuð í rekstrarlegum tilgangi og ekki til auglýsinga eða rakningar milli vefsvæða. Sumir þjónustuaðilar sem hlaðið er á vefinn (t.d. botna-vörn og letur, sjá lið 10) geta sett eigin vafrakökur eða sambærilega tækni þegar viðeigandi síður eru opnaðar.

7. Greiðslur og kaup

Á 52 hlutum kann að vera boðið upp á kredit- og debetkortagreiðslur, mánaðarlegar og árlegar áskriftir, kaup á stafrænum verðlaunum og möguleika á að gefa öðrum notendum stafræn verðlaun.

Vegna slíkra viðskipta vinnur Af öllu hjarta ehf. upplýsingar á borð við hvað var keypt, upphæð, stöðu pöntunar og tengingu við aðganginn þinn. Af öllu hjarta ehf. geymir ekki kortanúmer eða aðrar kortaupplýsingar.

Kortagreiðslur eru unnar af greiðsluþjónustunni Straumi greiðslumiðlun hf., sem tekur við og vinnur kortaupplýsingar í eigin öruggu greiðslukerfi samkvæmt þeim skilmálum og öryggisstöðlum sem gilda um greiðsluþjónustu. Um vinnslu Straums á kortaupplýsingum gilda persónuverndarreglur þess fyrirtækis.

8. Innskráning með Google

Þú getur skráð þig inn með Google-aðgangi. Þá tökum við á móti nafni, netfangi og prófílmynd frá Google til að stofna eða auðkenna aðganginn þinn. Við biðjum ekki um aðgang að öðru efni Google-aðgangs þíns (svo sem tölvupósti eða skjölum). Um meðferð Google á upplýsingum þínum gildir persónuverndarstefna Google.

9. Tölvupóstur og tilkynningar

Við sendum tölvupóst sem tengist rekstri aðgangsins, svo sem staðfestingu á netfangi og endurstillingu lykilorðs. Slíkir póstar eru sendir gegnum tölvupóstþjónustu okkar. Tilkynningar innan vefsins (t.d. um athugasemdir eða samskipti) eru geymdar á aðgangnum þínum. Við sendum ekki markaðspóst án þess að þú hafir sérstaklega óskað eftir því.

10. Þjónustuaðilar (vinnsluaðilar)

Við notum utanaðkomandi þjónustuaðila sem vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd eða sem hluta af því að afhenda þjónustuna:

  • Supabase — gagnagrunnur, auðkenning og myndageymsla. Gögnin eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins (svæði í Írlandi).
  • Netlify — hýsing vefsins og tæknileg afhending síðna.
  • Google — innskráning með Google-aðgangi og afhending leturs (Google Fonts) á síðum vefsins.
  • Cloudflare — botna-vörn (Turnstile) á innskráningar- og skráningarsíðu.
  • Resend — sending tölvupósts sem tengist aðgangi.
  • jsDelivr — afhendingarnet (CDN) fyrir tæknileg forritssöfn.
  • Straumur greiðslumiðlun hf. — vinnsla kortagreiðslna (þegar greiðslur eru virkar).

Ef þú birtir efni sem inniheldur innfellt myndband eða efni frá þriðja aðila (t.d. YouTube, TikTok eða Instagram) er slíkt efni sótt beint frá viðkomandi þjónustu þegar það er skoðað, og sú þjónusta getur þá tekið á móti tæknilegum upplýsingum. Um slíka þjónustu gilda persónuverndarreglur viðkomandi fyrirtækja.

11. Flutningur upplýsinga utan EES

Gagnagrunnur, auðkenning og myndageymsla eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins. Sumir þjónustuaðilar sem koma að hýsingu, afhendingu, letri, botna-vörn, innskráningu eða greiðslum kunna þó að vinna tæknilegar upplýsingar utan EES. Þegar upplýsingar eru fluttar út fyrir EES er leitast við að slíkt sé gert á grundvelli viðeigandi verndarráðstafana samkvæmt persónuverndarlögum.

12. Varðveisla og eyðing

Meðan aðgangur er virkur: Við geymum upplýsingar þínar og efni á meðan aðgangurinn er virkur, svo þjónustan virki eðlilega.

Þegar aðgangi er eytt: Þú getur eytt aðgangi þínum í gegnum vefinn. Þegar það er gert er aðgangurinn og efni hans fyrst gert óvirkt (mjúk eyðing), og innskráning er lokuð strax. Að 7 dögum liðnum er aðgangurinn og tengd gögn eydd endanlega úr gagnagrunninum.

Öryggisafrit: Gögn kunna að vera til staðar í öryggisafritum í takmarkaðan tíma eftir endanlega eyðingu, þar til slík afrit ganga eðlilega úr gildi. Við getum því ekki lofað nákvæmri eyðingu úr öllum afritum á sömu stundu.

Logs og öryggisupplýsingar: Tæknilegar aðgangsskrár hjá þjónustuaðilum kunna að varðveitast í takmarkaðan tíma vegna öryggis og reksturs.

Kaup og bókhald: Upplýsingar um kaup og greiðslur kunna að þurfa að varðveitast lengur en efni aðgangsins vegna bókhalds- og lagaskyldu.

13. Öryggi

Við beitum tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar, meðal annars aðgangsstýringu á gagnastigi (þannig að notendur sjái aðeins það efni sem þeim er ætlað að sjá), varið geymsla lykilorða, dulkóðuð samskipti (HTTPS), lokað geymslusvæði fyrir myndir í einkaspjalli og botna-vörn við innskráningu. Ekkert upplýsingakerfi getur þó tryggt algert öryggi, og við getum ekki ábyrgst að aldrei komi til öryggisatvika.

14. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú, eftir því sem við á, rétt til að:

  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig,
  • fá rangar eða ófullnægjandi upplýsingar leiðréttar,
  • fá upplýsingum eytt,
  • takmarka vinnslu,
  • andmæla vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum,
  • fá upplýsingar fluttar þar sem það á við,
  • afturkalla samþykki þar sem vinnsla byggist á samþykki,
  • leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd.

Sumt getur þú gert sjálf(ur) á vefnum, svo sem að uppfæra prófílupplýsingar, breyta sýnileika efnis og eyða aðgangi þínum. Til að nýta önnur réttindi, eða ef þú hefur spurningar, getur þú haft samband við okkur á hallo@afolluhjarta.is.

15. Breytingar á stefnunni

Við getum uppfært þessa persónuverndarstefnu þegar þjónustan, rekstur hennar, lög eða aðrar aðstæður gefa tilefni til. Nýjasta útgáfan er á hverjum tíma birt á 52hlutir.is með dagsetningu um hvenær hún var síðast uppfærð. Verulegar breytingar verða kynntar með hæfilegum fyrirvara.

16. Samband

Spurningar um þessa persónuverndarstefnu eða um meðferð persónuupplýsinga má senda á:

Af öllu hjarta ehf.
Lindargata 27
hallo@afolluhjarta.is

Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is).